![]() |
Um fyrirtækið Fyrirtækin sem standa að Innivist ehf., Almenna verkfræðistofan h.f. og
Rafstjórn ehf. hafa bæði um langt árabil unnið að því að bæta vistfræðilegt
ástand í byggingum.
Almenna verkfræðistofan h.f. er ein af elstu verkfræðistofum
landsins og hefur stundað
verkfræðilega ráðgjöf og hönnun á mörgum af stærstu og flóknustu byggingum landsins. Hönnun á
hitakerfum og loftræsikerfum í byggingar er meðal annars viðamikill þáttur í starfsemi
fyrirtækisins.
Rafstjórn ehf. er mjög sérhæft fyrirtæki með mikla þekkingu
og langa reynslu í
uppsetningu og eftirliti með stjórnbúnaði loftræsti- og hitakerfa. Fyrirtækið hefur
eingöngu á að skipa fagmönnum sem unnið hafa að mörgum viðamiklum verkefnum eins og
Ráðhúsi Reykjavíkur og Flugstjórnarmiðstöðinni á Reykjavíkurflugvelli.
Starfsemi fyrirtækjanna er nokkuð ólík í eðli sínu þar sem annað er ráðgjafafyrirtæki
en hitt iðnfyrirtæki. Sameiginlegur starfsvettvangur hefur hins vegar skapað grundvöll fyrir
stofnun fyrirtækis sem ætlað er það hlutverk að kanna vistfræðilegt ástand í byggingum og
veita ráðgjöf sem leiðir til betri innivistar.
|
|
Innivist ehf. · Fellsmúla 26 · 108 Reykjavík
Sími 580 8100 · Fax 580 8101 · Netfang innivist@simnet.is |
||