Fólk leiðir almennt ekki hugann að því hvaða áhrif slæm innivist hefur
umfram óþægindin sem þjakar þá sem verða að þola hana. Í daglegu tali
eru óþægindi af þessu tagi nefnd "húsasótt". Slæm innivist
hefur veruleg áhrif á vinnuafköst og þar með fjárhagslega afkomu
fyrirtækja. Rannsóknir hafa t.d. leitt í ljós að vinnuafköst geta minnkað um
allt að 20% ef innihiti er hækkaður um 2 – 3°C umfram kjörhitastig viðkomandi
vinnustaðar.
Góð birta í húsum, réttur hiti og rakastig, gott andrúmsloft og náttúruleg efni,
sem ekki menga frá sér, þarf að hafa sérstaklega í huga við hönnun og byggingu húsa.
Ef miðað er við að venjulegt skrifstofustarf kosti um 3 milljónir króna
á ári þá er ljóst að óeðlilega hátt hitastig og þar með verri nýting starfskrafta
vegur umtalsvert í fjárhagslegri afkomu fyrirtækis sem byggir starfsemi sína á
umsvifamiklum skrifstofurekstri. Þar við bætist síðan hærri kostnaður vegna
upphitunar. Þannig er einnig farið um marga aðra áhrifsþætti sem verka á fólk
í starfi innanhúss, en vitaskuld með misjöfnum þunga.