![]() |
Skýringar á helstu hugtökum
Hitaástand
Ýmsir umhverfisþættir hafa áhrif á hitaskynjun mannsins, þ.e. þegar hitaástand í vinnuumhverfi er metið þarf að mæla eða áætla eftirfarandi þætti: · Klæðnað · Hreifistig (Metabolic Rate) · Skynjunarhita (Operative Temperature) · Rakastig · Trekk · Hitastig á gagnstæðum flötum Rakastig Rakastig (RS) í lofti er skilgreint með jöfnunni RS=100 Pa/Pas Pa=Hlutþrýstingur vatns Pas=Mettunarhlutþrýstingur vatns við sama hitastig og sama þrýsting. Skynjunarhiti Skynjunarhitastig (Operative Temperature) tekur tillit til varmaflutnings að og frá fólki vegna áhrifa misheitra flata í umhverfinu og er þannig betri mælikvarði á hitastig en einföld mæling á lofthita. Skilgreiningin á skynjunarhita er nokkuð flókin en er þannig: Skynjunarhitastig er það einsleita hitastig á geislunarlega svörtu umhverfisyfirborði, sem veldur sama varmaflutningi með geislun og streymi og það misleita umhverfi sem verið er að mæla. Rafsegulsvið Rafsegulsvið myndast umhverfis rafleiðslur og tæki sem nota rafmagn og er yfirleitt mælt með einingunni mG (milli-Gauss). Rannsóknir hafa sýnt að hjá fólki sem býr við mikið rafsegulsvið, hvort sem er í vinnunni eða heima, geta komið fram líffræðileg einkenni sem rekja má til rafsegulsviðs. Rannsóknir á þessum áhrifum rafsegulsviðs eru þó skammt komnar þ.a. að menn hafa sett sér advörunarmörk við 3-5 mG. Ef styrkur rafsegulsviðs fer yfir þessi mörk í umhverfi fólks er ástæða til að gera úrbætur, sem geta falist í að jarðtengja tæki og koma fyrir uppbrotsspólum (cancellation loops). Koltvíoxíð Við venjulega líkamsstarfsemi gefur fólk frá sér koltvíoxíð (CO2). Í útöndunarlofti er styrkur koltvíoxíðs um 40.000 ppm en í útilofti er styrkurinn 350-450 ppm. Þegar styrkur koltvíoxíðs í innilofti er á bilinu 500-1000 ppm fer fólk að finna til óþæginda af þeim völdum. Í nýrri byggingarreglugerð er settar fram kröfur um að meðalstyrkur koltvíoxíðs í vinnu- og dvalarrýmum skuli ekki vera meiri en 800 ppm og hámarksgildið ekki meira en 1000 ppm. Nánari upplýsingar: Byggingarreglugerð (nr. 441/1998) á vef Skipulagsstofnunar. |
|
Innivist ehf. · Fellsmúla 26 · 108 Reykjavík
Sími 580 8100 · Fax 580 8101 · Netfang innivist@simnet.is |
||