![]() |
Þjónusta ![]() Innivist ehf. annast mælingar á vistfræðilegum þáttum innanhúss, sem hafa áhrif á líðan manna
og leggur mat á æskilegar úrbætur. Mælingarnar byggjast á staðlaðri mælitækni og eru gerðar með
háþróuðum mælitækjum. Mæligildi eru skráð jafnóðum inn í tölvu og úrvinnsla er þar af leiðandi
nákvæm og hraðvirk.
Margir áhrifsþættir hafa áhrif á hitaskynjun mannsins og er því alls ekki víst að skynjun um of lágan hita stafi af of lágum lofthita í viðkomandi herbergi. Mælingar geta sýnt að óþægindi stafi af misheitum flötum eða lofttrekk. Úrbætur geta því verið á annan veg en búast mætti við fyrirfram og verða því oft einfaldar og ódýrar. Innivist hefur einnig mjög fullkominn búnað (video-myndavél) til að skoða innra ástand loftræstikerfa, en á grundvelli slíkrar skoðunar eru gerðar tillögur til úrbóta til að tryggja hagkvæman rekstur og heilnæmara inniloft. Innivist ehf. getur þvi boðið heildarlausnir, þ.e. rannsóknir, úttektir og úrbætur. |
|
Innivist ehf. · Fellsmúla 26 · 108 Reykjavík
Sími 580 8100 · Fax 580 8101 · Netfang innivist@simnet.is |
||